Risastórar smásögur 2026

91 SKRÝTNA JÓLAGJÖFIN TINNA KAREN JÓHANNESDÓTTIR, 11 ÁRA MYNDHÖFUNDUR: ELÍN SÓLEY SANDE E CASTRO, 11 ÁRA Ég er búin að bíða eftir þessu kvöldi svooo lengi! Loksins er komið aðfangadagskvöld og við fjölskyldan, ég, mamma, pabbi og bræður mínir, erum eins og alltaf heima hjá ömmu og afa í Lindarselinu. Ég hélt að við ætluðum aldrei að verða búin að borða, pabbi þurfti endalaust að fá sér meira og svo tók heila eilífð að ganga frá eftir matinn en við erum núna loksins sest niður til að opna pakkana. „Jæja, þá kemur næsti pakki,“ segir afi og les upphátt á merkimiðann: „Gleðileg jól, elsku Tinna! Vonandi á þessi pakki eftir að færa þér mikla gleði. Frá Stúfi.“ „Uuuuu, frá Stúfi, af hverju er Stúfur að gefa mér pakka?“ spyr ég með undrunarsvip. Ég vona svo mikið að þetta sé hundur því það var það sem ég óskaði mér mest en þessi pakki er kringlóttur og ég veit sjálf að hundar eru ekki kringlóttir svo það eru kannski ekki miklar líkur á því. Ég reyni að opna pakkann en það er eins og hann sé límdur saman með einhverju ofurlími. „Jesss,“ segi ég þegar mér loksins tekst að losa pappírinn og boltinn sem leynist inni í pakkanum skoppar upp í loftið. Boltinn skýst fyrst í hausinn á pabba, svo í jólatréð og endar svo í fanginu á mér.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=