40376 Sögur er skemmtilegt samstarfsverkefni sjö stofnana sem allar eiga það sameiginlegt að vilja kveikja áhuga barna á lestri og skapandi skrifum. Að verkefninu koma Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, KrakkaRÚV, Borgarbókasafn Reykjavíkur, List fyrir alla, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Borgarleikhúsið. Í verkefninu er lögð áhersla á að gefa hugmyndum barna vængi, að sýna þeim að smá hugmynd getur orðið að RISAstórri sögu. Markmiðið er að vekja forvitni, ýta undir sköpun og sýna að það sem börn hafa fram að færa skiptir máli. Sem hluti af verkefninu var haldin smásagnasamkeppni á vef KrakkaRÚV þar sem börn á aldrinum 6–12 ára sendu inn sögur. 17 sögur voru valdar til útgáfu í rafbók og þannig fengu hugmyndir barnanna að lifa áfram og ná til fleiri lesenda. Með þessu er verið að gefa börnum rödd, hvetja þau til að skapa og um leið lyfta upp barnamenningu á Íslandi á lifandi og skemmtilegan hátt. smásögur STÓRAR RISA 2026
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=