Risastórar smásögur 2026

86 Fjórum klukkustundum seinna Úfff, núna er komið hádegi og ég þarf að fá mér hádegismat. Mmmmm, þarna er fossavatn og fíflasalat, geitabrauð með mosapestói og smá fíflamjólk sem mér tókst að kreista einhvers staðar út. Ég verð að fara sparlega með þetta því ég þarf að nýta þennan mat í tvo daga og ég er algjört átvagl eins og flest tröll. Heyrðu! Þarna er stór steinn til að sitja á. Heyrðu!! Mér finnst eins og hann tali við mig. Heyrðu!!! Þarna opnast lítið gat á honum og … Heyrðu!!!! Lítill álfur kemur út. „Halló, litli álfur! Ertu að skamma mig? Hvers vegna? Aaaa, vegna þess að ég settist á húsið þitt. Fyrirgefðu, ég skal ekki setjast á húsið þitt aftur, ég skal bara setjast einhvers staðar annars staðar, bless bless.“ Nákvæ mlega einum sólarhring seinna Núna er ég komin niður að sjó og ég sé í toppinn á Sætröllahöllinni. Ó já, ég verð að komast í Sætröllahöllina, hvernig í ósköpunum á ég að gera það? Hei, þarna er bátur, ég ætla að fara og kíkja á hann. Hvers vegna eru allir að öskra? Er ég svona hræðileg? Ég er greinilega ekki velkomin hér. Ég verð bara að synda. Einn, tveir, þrír og stökkvaaaa. Júhú! Úff, sjórinn er ískaldur þótt það sé hásumar. Úff púff, æjj æjj, ég er þreytt, ég hefði kannski átt að taka betur eftir þegar við vorum að læra sund í tröllaskólanum. Ég er alveg að verða komin. Hei! Þarna er báturinn. Ekki hætta að synda, Tinn Tinn. Þau eru að taka myndir af mér. Skrítið!! Aaah, núna er ég komin. Bíddu, hvernig kemst ég inn? Hvað sagði afi aftur? Hugs hugs, humm … Já, nú man ég það. Ég átti að fara niður undir stóru eyjuna sem er með húsum á. Æj, hún er aðeins lengra í burtu. Fimm mínútum seinna Núna er ég komin og þarf að banka þrisvar sinnum í hana. Þá kemst ég inn, en ég þarf að segja leyniorð. Ég man upp á hár hvert leyniorðið var: „Lifi Sæ tröllin“ og núna er ég komin inn í Sætröllahöllina.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=