Risastórar smásögur 2026

85 Tinn Tinn og ferðin til Ægrantíu RAGNHILDUR SARA O’BRIEN, 10 ÁRA Aaaaaaaaaa! Úff! Eins gott að ég lendi ekki ofan í á, eða það komi skriða á eftir mér. Halló, ég heiti Tinn Tinn og var að rúlla niður Baulu og þess vegna er ég svona skítug. Ég er mjög snyrtilegt tröll ef ég miða mig við foreldra mína og systkini sem eru mjög óþrifaleg. Ég er sem sagt að laumast út en það gekk ekki betur en svo að ég rann niður allt fjallið og endaði hérna. Æjj æjj! Ég held ég hafi mögulega týnt nestinu mínu, kannski ég fari að leita að því. Nesti? Nesti? Ahhh, þarna ertu, eins gott að ég fann þig. Nú get ég lagt af stað. Ég er sem sagt á leiðinni í Sæ tröllahöllina sem er undir því sem manneskjur kalla Vestmannaeyjar. Ástæðan fyrir því að ég er að fara þangað er sú að sólin skín ekki lengur á fjallið mitt. Það gerist náttúrulega stundum á veturna, en það er skrítið núna því það er hásumar. Í Sætröllahöllinni er tröllabókasafn. Afi minn sagði mér frá því og að hann væri of gamall til að fara þangað. Þess vegna hvatti hann mig til að fara þangað, því ég er svo ung. Ég er bara rétt 50 ára. Á þessu tröllabókasafni má nálgast allt sem tröll þurfa að vita, t.d. uppskriftir að því hvernig tröll býr til mosapestó sem hljómar ógeðslega en er geðveikt gott, þú bara verður að fá tröll til að gera það fyrir þig. Jæja, en nú þarf ég að leggja af stað.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=