Risastórar smásögur 2026

87 Næst þarf ég að finna tröllabókasafnið. Þarna er skilti, best að ég kíki á það. B-Ó-K-A-S-A-F-N, bókasafn. Þá fer ég til hægri. Úfff, þetta er laaaaangur gangur. Ég ætla bara að hlaupa, þá kemst ég hraðar á bókasafnið. Þarna er bókasafnið. Æjj æjj, ég hljóp of hratt! Ég verð að stoppa og labba til baka. Ohh, ég sem er að flýta mér. Og núna er ég komin á bókasafnið. Mikið er þetta búin að vera löng ferð. Annaðhvort tveir eða þrír dagar. Váááá, hvað fullorðnu sætröllin eru stór. Ég hafði ekki tíma til að virða þau fyrir mér þegar ég var á leiðinni inn í höllina, ég var að flýta mér svo mikið. Þau eru miklu stærri en mamma og pabbi og miklu miklu stærri en ég. Ég ætla að spyrja bókasafnsvörð hvar fræðibækur séu. „Herra bókasafnsvörður, veistu hvar fræðibækur um himininn eru?“ „Þarna í bláu H-deildinni? Takk fyrir, skemmtilega flokkað hjá ykkur.“ Þarna er ein bók um eilífa nótt, ég ætla að lesa hana: „Ef einn af dvergunum fjórum missir takið á sínum hluta himinsins, þá verður myrkrið svartara á sumum stöðum og það kemur aldrei dagur á öðrum.“ Aaaa, nú skil ég! Heyrðu! Hvað heita þessir dvergar? Þarna stendur það. Þeir heita Austri, Vestri, Norðri og Suðri. Þá hlýtur Vestri að hafa missti hornið sitt. Og Vestri býr í Ægrantíu, hér stendur það. Takk fyrir mig og bless. Ég verð að fara til Sætröllakóngsins og ég þarf að drífa mig. Þarna er skiltið sem ég var að lesa á áðan. Á skiltinu sem snýr til vinstri stendur: S-Æ-T-R-Ö-L-L-A-K-Ó-N-G-U-R. Þá fer ég þangað. Ég dríf mig þá bara af stað, verð samt að passa mig á að hlaupa ekki of hratt. Þarna er salurinn hans! Í þessum sal er bara Sætröllakóngurinn. Ég þarf að hneigja mig, því hann er hefðartröll og það er dónaskapur að hneigja sig ekki fyrir hefðartröllum, sama hvort þau séu úr öðrum ríkjum eða þínu eigin ríki. „Kæri Sætröllakóngur, ég heiti Tinn Tinn og ég þarf að fá aðstoð frá þér vegna þess að það er eilíft myrkur í Baulu, fjallinu mínu. Ég er búin að lesa mér til um það á bókasafninu hvers vegna það er svona mikið myrkur. Það er vegna þess að dvergurinn Vestri, sem býr í Ægrantíu og heldur horninu á himninum fyrir ofan fjallið mitt, hefur misst takið. Þess vegna er eilíft ójafnvægi þangað til einhver hefur rétt honum hornið sitt aftur. Gætir þú hjálpað mér að finna

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=