84 „Takk fyrir, Pétur og Lína!“ sagði mamma hennar Álfalínu. Næst fóru Pétur og Lína með Davíð heim. Foreldrar hans fóru líka að gráta af gleði. Svo fóru Pétur og Lína heim til sín. „Hvar voruð þið?“ spurði mamma Péturs. „Við vorum að bjarga Davíð og Álfalínu,“ sagði Pétur. „Þið eruð svo góð,“ sagði mamma Péturs. Næsta dag byrjaði skólinn aftur og Pétur og Lína voru glöð að vera komin aftur í skólann. Þar léku þau öll fjögur saman: Álfalína, Pétur, Lína og Davíð. Svo fóru þau í samkomusalinn og sögðu að Pétur og Lína hefðu bjargað Álfalínu og Davíð. Eftir það voru þau kölluð ofurálfarnir í Álfadalnum, og lifðu hamingjusöm til æviloka. ENDIR
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=