83 Þegar Pétur og Lína komu upp sáu þau Tiptop sem var tilbúinn með hníf til að skera höfuðið af Álfalínu áður en hann hrinti henni ofan í eldfjallið. Hálfur klukkutími var núna búinn hjá Pétri, en hann var tilbúinn með sverðið frá afa sínum, sem hann fékk til að bjarga sér ef hann væri einhvern tímann á Hræðilegasta stað í heimi. Tiptop sá Pétur en ekki Línu, og Lína náði að losa Álfalínu. Þá stakk Pétur leysigeislasverðinu í hálsinn á Tiptop, og þau tóku í hendurnar á Álfalínu og Davíð og flugu með þau heim. 7. kafli Þegar þau komu heim með Álfalínu, hringdu þau dyrabjöllunni á álfakastalanum. Þá komu foreldrar Álfalínu og bróðir og byrjuðu að gráta af gleði því þau höfðu verið svo hrædd um hana.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=