82 „Nei,“ sagði nornin. „Af því að ég á systur sem er drottning og ég á aðra vini sem eru úlfar.“ Á meðan Pétur talaði við nornina náði Lína að losa Davíð. Svo ýtti Pétur norninni á björn sem var í skóginum og björninn klóraði nornina á enninu. Norninni brá svo mikið að hún tók ekki eftir því þegar álfabörnin laumuðust í burtu. Nú þurftu þau bara að finna Álfalínu. Þau ætluðu að leita í Snjódalnum. En fyrst þurftu þau að hvíla sig. Þau fundu prik og tvö teppi og bjuggu til skýli þar sem þau notuðu eitt teppi sem skjól og hitt teppið til að liggja á. Svo fóru þau að sofa. 5. kafli Næsta dag flugu þau af stað aftur. Pétur og Lína héldu í hendurnar á Davíð svo hann gat flogið með þeim. Þau flugu og flugu þar til þau sáu mikinn snjó. Þá lentu þau. Þau heyrðu fallega tónlist. Svo kom tígrisdýr fljúgandi til þeirra. „Veist þú hvar Álfalína er?“ spurði Pétur. „Við finnum hana hvergi,“ sagði Lína. „Ég veit hvar hún er,“ sagði tígrisdýrið. „Hún er á hræ ðilegasta stað í heimi.“ „Ég þori ekki að fara þangað, Pétur,“ sagði Lína. Tígrisdýrið vorkenndi þeim og vildi hjálpa þeim. Það gaf þeim kristal svo þau yrðu ósýnileg. „Þegar þið sleikið þennan kristal, verðið þið ósýnileg í hálfan klukkutíma og ekki meira en það.“ 6. kafli Þau flugu aftur af stað. Þau flugu og flugu þar til þau komu á Hræðilegasta stað í heimi. Þau lentu og sleiktu kristalinn til þess að verða ósýnileg. Þau flugu upp til Álfalínu sem var bundin við stein uppi í fjalli. Það var tröllið Tiptop sem hafði stolið henni. Tiptop ætlaði að brenna Álfalínu í eldfjalli.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=