Risastórar smásögur 2026

81 lentu í Heitu eyðimörkinni. Þá fóru þau í kuldaskikkjurnar og gengu og gengu. Þau sáu stóran sandkastala og fóru inn í hann. „Hvar erum við?“ sagði Lína. „Það veit ég ekki,“ sagði Pétur og bætti við: „Eigum við að ganga aðeins lengra?“ „Ókei,“ sagði Lína. Þá sáu þau Sanddrottninguna. „Hvert eruð þið að fara?“ spurði Sanddrottningin. „Við erum að leita að Davíð og Álfalínu,“ sagði Pétur. „Þau eru ekki hér, en viljið þið sofa hér?“ spurði Sanddrottningin. „Já, takk!“ sagði Pétur. Svo fóru þau að sofa til að vera vel upplögð næsta dag. Þau ætluðu að leita næst í Kalda skóginum. 4. kafli Næsta dag fengu þau bollur í morgunmat og sögðu bless við Sanddrottninguna. Þau flugu af stað í Kalda skóginn. Þar sáu þau Davíð bundinn við tré og það voru spjót í kringum hann. Það var norn sem hafði stolið honum. Hún hét Kalinka. Þau bjuggu til áætlun. Lína átti að bjarga Davíð og Pétur átti að tala við nornina Kalinku. Lína fór og hvíslaði: „Hæ, Davíð. Þetta er ég, Lína, sem er komin að bjarga þér, og Pétur er hérna líka.“ Pétur sagði: „Góðan daginn, frú.“ „Hver ert þú?“ hrópaði nornin. „Ég heiti Pétur.“ „Þú mátt ekki vera hér,“ sagði nornin. „Ég get verið vinur þinn,“ sagði Pétur. Hann var að reyna að fá nornina til að horfa á sig svo að Lína gæti bjargað Davíð á meðan.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=