80 Þau komu inn í skólastofuna og kennarinn sagði að Álfalína hefði týnst á morgungöngunni. Þau héldu öll að það væri líka búið að stela henni. Kennarinn sagði: „Nú má enginn koma í skólann fyrr en það er búið að finna álfabörnin Davíð og Álfalínu.“ Pétur og Lína voru mjög leið og áhyggjufull. Þau langaði til að bjarga Davíð og Álfalínu. Þau héldu að þau gætu fundið Davíð og Álfalínu í Heitu eyðimörkinni. Þau vissu að kennarinn átti alls konar töfraflöskur. Þau fóru inn á kennarastofuna og sáu hillur fullar af flöskum. Þau klifruðu upp í stiga og stálu vængjaflösku sem gat látið mann fljúga. 2. kafli Pétur sagði að þau ættu að fara heim til að sofa, ná í eitthvað hlýtt að klæðast og mat, og að þau skyldu hittast næsta morgun áður en hinir álfarnir vöknuðu. Svo var kominn tími til að leggja af stað. Lína og Pétur lögðu af stað að Álfavatni. Þau settu tvo dropa úr vængjaflöskunni í vatnið. Síðan hoppuðu þau í vatnið og fengu vængi. Þau syntu upp úr vatninu og flugu af stað. Þau flugu og flugu. Svo kom stór alda og hrifsaði þau niður í hafið. Þá komu Hafdrottning og Hafkóngur og töfruðu svo að Pétur og Lína gátu andað í vatninu. Þau opnuðu augun og spurðu: „Hver eruð þið?“ „Við erum Hafdrottning og Hafkóngur. Hvert eruð þið að fara?“ spurðu Hafdrottningin og Hafkóngurinn. „Við erum á leiðinni í Heitu eyðimörkina,“ sögðu Pétur og Lína. Hafdrottningin og Hafkóngurinn gáfu þeim kuldaskikkjur svo þeim yrði ekki allt of heitt í eyðimörkinni. 3. kafli Þau sváfu í stórum og kósý skeljum á hafbotni. Næsta dag fengu þau sjávarepli í morgunmat og sögðu bless við Hafdrottninguna og Hafkónginn. Svo flugu þau af stað. Þau flugu og flugu þar til þau
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=