Risastórar smásögur 2026

79 Ofurálfarnir HANNA JÚLÍA LORENZ, 8 ÁRA 1. kafli Einu sinni voru álfastrákur og álfastelpa. Þau hétu Pétur og Lína og voru bestu vinir. Þau voru að fara að byrja í skóla og voru mjög spennt. Daginn áður en skólinn byrjaði kom afi Péturs í heimsókn til hans. Pétur kom hlaupandi að hurðinni til að opna og sá að afi var með gjöf til Péturs. Það var sverð. Töfrasverð sem gat skorið með leysigeisla. „Pétur, þú mátt ekki nota þetta sverð nema þú sért á Hræðilegasta stað í heimi,“ sagði afi. Næsta dag fóru þau í skólann. Í skólanum hittu þau Davíð sem hafði verið með þeim í álfaleikskóla. Pétur, Lína og Davíð ákváðu að fara saman inn í skólastofuna. Álfakennarinn var að kenna þeim að lesa og reikna og það var skemmtilegt. Í skólanum kynntust þau líka álfaprinsessu sem hét Álfalína. Hún var með þeim í bekk. Hún var vingjarnleg og góð í lestri og stærðfræði. Pétur varð smá skotinn í henni, en Álfalína var mest að leika við Davíð og hafði ekki tíma til að leika við Pétur og Línu. Eftir skóla fóru þau öll heim til sín og fóru að sofa. Þegar þau komu í skólann næsta dag, sagði kennarinn að álfastrákurinn, hann Davíð, hefði horfið þegar hann var í göngutúr og hún var hrædd um að það væri búið að stela honum. Álfakennarinn sagði að þau ættu að fara heim, læsa hurðum og loka gluggum heima hjá sér og koma svo aftur á morgun. Morguninn eftir komu þau aftur í skólann. „Hvar er Álfalína?“ spurði Pétur. „Það veit ég ekki,“ sagði Lína. „Hvar getur hún verið?“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=