71 Leikurinn hefst og eftir aðeins 5 mínútur er liðsfélagi Elísu búin að skora fyrsta markið. Þegar 5 mínútur eru eftir af leiknum er staðan 2-2. Boltinn berst til Elísu og hún ákveður að keyra upp kantinn og láta vaða á markið. Hún hittir boltann vel og hann syngur í netinu. Elísa fagnar með því að fara í kollhnís. Afi hrópar og klappar hæst af öllum á vellinum. Þróttur tekur miðjuna og stuttu seinna flautar dómarinn leikinn af. Elísa og liðsfélagarnir fagna vel og taka við bikarnum. Hún hleypur til afa og knúsar hann. Afi hvíslar í eyra hennar og segir: „Þetta var aldrei neinn töfrabolti, það varst bara ÞÚ sem gerðir töfrana sjálf.“ ENDIR
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=