70 4. kafli – Símamótið Restin af vikunni klárast og mótið byrjar á morgun. Elísa spyr mömmu hvort afi sé laus og gæti farið með henni í sund. Mamma heyrir í afa Begga og auðvitað svarar afi strax: „Jú, auðvitað, elskan mín.“ Eftir stutta stund keyrir afi inn innkeyrsluna, bíbar hressilega á Elísu og veifar. Elísa er náttúrulega búin að hafa sig til, hleypur út og heilsar afa. Þegar þau eru komin ofan í sundlaugina segir Elísa að hún sé svolítið stressuð út af mótinu. „Af hverju?“ spyr afi. Þá svarar Elísa: „Ég má ekkert nota töfraboltann á mótinu.“ Afi reynir að hughreysta hana og segir: „Þú verður að hugsa að allir boltar séu töfraboltinn!“ Þetta hjálpar Elísu mjög mikið og eftir sundferðina er hún tilbúin í mótið. Næsta morgun, á fyrsta leikdegi, koma vinkonur Elísu og mamma fléttar stelpurnar með gulu og bláu gervihári. Þegar Elísa mætir inn í Kópavog hittir hún afa sem er mættur að horfa á Elísu spila. Hún hitar vel upp með liðinu og leikur síðan fyrsta leikinn á móti heimastelpunum í Breiðabliki. Þegar leikurinn er sirka hálfnaður sendir liðsfélagi Elísu boltann í átt að miðjunni þar sem Elísa tekur við honum og sér að markmaður Blikanna er svolítið langt úti. Hún ákveður að negla á markið með orð afa í huganum: Allir boltar eru töfraboltinn. Boltinn svífur yfir markmanninn, beint í samskeytin. Gjörsamlega sturlað mark! „Vá, planið hans afa er að virka,“ hugsar Elísa. Leikurinn klárast og Fjölnisstelpurnar unnu öruggan sigur 4-0. Í leik númer tvö og þrjú gengur stelpunum áfram vel og Elísa fer stolt heim á leið með þrjá sigra í hús og fjögur mörk. Restin af mótinu gengur vel og liðið hennar Elísu er komið í úrslitaleik um aðalbikarinn á móti Þrótti.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=