72 Sóley verður norn Sóley vaknaði, fór fram úr og fékk sér morgunmat. Þegar hún gekk út um dyrnar til að fara í skólann steig hún á bláa bók á gangstéttinni fyrir utan. „Hvað er þetta?“ spurði Sóley og tók bláu bókina upp. „Þessi bók er dálítið gömul,“ sagði Sóley forvitin. Hvað var þetta framan á bókinni? Það var hattur. Enginn venjulegur hattur, heldur var þetta nornahattur. Hún kíkti inn í bókina. Formáli, stóð efst á fyrstu blaðsíðunni. Ef þú vilt verða góð norn þá skaltu fylgja þessum reglum: 1. Vertu góð við alla 2. Hjálpaðu öllum í neyð 3. Gefðu öllum annað tækifæri „Fínar reglur,“ sagði Sóley og fletti áfram í bókinni. Á einni blaðsíðunni var mynd af flösku og við hlið hennar stóð stórum stöfum: Seyðisgerð. Þetta verð ég að prófa, hugsaði Sóley. Sóley gerði seyði svo hún gæti farið til Oz. Hún drakk seyðið. MÍA ELDEY EINARSDÓTTIR, 8 ÁRA
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=