67 Töfraboltinn BERGLIND SVANA HELGADÓTTIR, 11 ÁRA MYNDHÖFUNDUR: BENJAMÍN ARON ÁRNASON, 13 ÁRA 1. kafli – Heimsókn til afa Elísa er á leiðinni með mömmu að heimsækja afa sinn. Afi hennar er að fara að flytja úr stóra húsinu sínu og á elliheimili. Þær ætla að fara saman og hjálpa honum að fara í gegnum dótið hans og Elísa vonast eftir því að fá eitthvað flott dót frá afa. Elísa er 11 ára, ljóshærð, bláeygð og kröftug fótboltastelpa í 5. flokki Fjölnis. Afi Beggi er rosalega mikill Fylkismaður en heldur samt alltaf með Elísu þegar hún er að spila fótbolta. Hún elskar fótbolta meira en allt annað en henni hefur samt ekkert gengið neitt sérstaklega vel á síðustu mótum og situr oft á bekknum. Það hefur aðeins vantað upp á sjálfsöryggið hjá henni og hún nær ekki alveg að sýna þjálfaranum hvaða kraftar búa raunverulega í henni. Elísa spilar með númer 7 á bakinu. Ástæðan fyrir því að hún spilar með töluna 7 er sú að margir góðir fótboltamenn og
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=