Risastórar smásögur 2026

66 Jörð – Ekkert mál, hittumst þá. Sólin – Allar plánetur! Fundur, núna. Allir nema Sólin og Jörð – Ókei. Sólin – Jörð kom með dálítið leiðinlegar fréttir áðan. Plútó, komdu hérna aðeins. Plútó – Umm, af hverju? En ókei. Sólin – Plútó, mennirnir segja að þú sért of lítill fyrir sólkerfið. Fyrirgefðu, en þú þarft að fara. Plútó – En en ég gerði ekkert raaaaaaaaaaaaaaaaaangt. Satúrnus – Sól, Plútó gerði ekkert rangt. Af hverju sendirðu Plútó burt? Júpíter – Já, Plútó gerði ekkert rangt. Mars – Já, búúúúú. Jörð og Sólin – STOOOPP! Hæ ttið! Plútó (langt í burtu) – Fæ ég einhvern tímann að koma til baka? Sólin – Bara ef þú stækkar eða vísindamennirnir skipta um skoðun. Jörð – Ég er ekki viss um að þeir skipti um skoðun. Plútó (langt í burtu) – Ó, ókei, vonandi skipta þeir um skoðun. Sólin – Vonandi. Merkúríus – Hverju missti ég af? Ég var á klósettinu. Sólin – Engu mikilvægu, bara að Plútó var sendur út í geim. Plútó (langt í burtu) – Hvað meinarðu? Engu mikilvægu? Ég er einn úti í geimi. Sólin – HA! Ég heyri ekki í þér … Allt í lagi, fundurinn er búinn. ENDIR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=