Risastórar smásögur 2026

65 Sólin – Ooog þú eyðilagðir það. Allir nema sólin – Hver er þetta? Sólin – Þetta átti að vera leyndarmál þangað til á eftir en já, allir, þetta er Plútó. Fundurinn átti að vera um hvort Plútó mætti vera með í hópi reikistjarna í sólkerfinu okkar. Plútó – Hæ, allir. Allir nema sólin – HÆ. Sólin – Núna er tími til að kjósa. Allir sem vilja að Plútó verði níunda reikistjarnan í sólkerfinu okkar, segið HÓ. Allir nema Jörð – HÓÓÓÓÓ. Sólin – Jörð, viltu ekki að Plútó sé með okkur í sólkerfinu? Jörð – Jú jú, Plútó má alveg vera með en fólkið er að reyna að segja mér eitthvað, senda skeyti. Sólin – Og hvað segja þau? Jörð – Hum um hu já, ókei. Sko, þau eru eitthvað að tala um dverga, bíðum bara og sjáum. Plútó – Ég bíð bara hér. Sólin – Allt í lagi. Fundurinn er búinn. Árið 2006 úti í geimi. Jörð – SÓL! Sólin – Hvað? Jörð – Ég hef góðar og slæmar fréttir. Góðu fréttirnar eru að mennirnir eru enn ekki útdauðir og slæmu fréttirnar eru að vísindamennirnir vilja ekki að Plútó verði talinn með sem reikistjarna í sólkerfinu okkar. Sólin – Af hverju? Jörð – Plútó er of lítill og vísindamennirnir segja eitthvað um dvergplánetur. Sólin – Takk fyrir, Jörð, ég kalla á alla og það verður fundur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=