Risastórar smásögur 2026

59 Jón kemst þá einnig að því hvað sjóræningjarnir eru að gera hér, en þeir eru að skipuleggja næsta rán og það hlýtur þá að útskýra kortið sem sjóræninginn var með í för í skipinu. Hann ákveður að endurheimta kistilinn fyrir land sitt, en það er byrjað að dimma og Jón þarf að finna skjól fyrir nóttina, enda veit hann að hann getur ekki gert þetta einn. Hann sér lítinn helli og býr um sig þar fyrir nóttina og sofnar. Allt í einu verður honum mjög kalt og vaknar, hann stendur upp og gengur út úr hellinum, lítur niður brekkuna og sér þar ísbjörn. Jón flýtir sér að taka saman dótið sitt og tekur spjót í aðra hönd og læðist út. Gengur af stað til að leita liðsauka til að fella ísbjörninn. Jón sér hús skammt frá og kemst þar inn, þar voru víkingar sem hann kannaðist við. Þetta voru þeir Gísli og Guttormur, vinir hans frá Noregi. Þeir höfðu stórar fréttir að færa Jóni, stríðið hafði loksins tekið enda í Noregi. Jón verður glaður með fréttirnar góðu, segir vinum sínum sína ferðasögu um kistilinn, sjóræningjana og ísbjörninn. Biður þá um hjálp við að fella hann. Þeir vildu það, fóru út með spjót og luktir, fundu ísbjörninn við á eina, þeir taka allir upp spjót sín, miða á réttan stað og fella ísbjörninn. Þar með er ísbjörninn úr sögunni. Jón hinn mikli, Gísli og Guttormur tala saman og ákveða hvernig þeir ætli að komast frá Grænlandi til Íslands. Þeim finnst ráðlegast að koma sér á skip sjóræningjanna, fara þar um borð, losa akkerið og sigla af stað til Íslands, þar sem stefnan er tekin á Kóngshól. Ferðin gekk ágætlega, en sjóræningjarnir áttuðu sig á því að skipið var horfið og fóru á eftir þeim á báti. Jón hinn mikli skaut úr fallbyssunni á sjóræ ningjana, úr skipinu og þar með voru sjóræningjarnir úr leik. Ferðin hélt áfram og loks komust þeir á Kóngshól. Þar tóku fylgdarmenn hans á móti þeim vinum, hjálpuðu við að grafa upp kistilinn góða sem var grafinn á Bóndhól. Eftir þetta ákvað Jón að snúa aftur heim til Noregs til að sinna landi sínu, honum fannst Ísland vera fallegt land og vildi halda Kóngshólnum sem sínum örugga stað til að fara á. Í Noregi var Jóni fagnað vel og endurheimt gullkistilsins. ENDIR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=