Risastórar smásögur 2026

58 Sjóræningjanum bregður og hann hoppar upp úr stólnum, gengur að kistunni þar sem Jón er í felum og ætlar að opna hana. Kallað er „land“, hann hættir við og gengur út úr herberginu. Skipið er komið til Grænlands. Þar ganga mennirnir af skipinu og Jón læðist á eftir þeim. Jón er hrifinn af Grænlandi og skoðar sig vel um þar. En eitthvað finnst honum vera á seyði og hann fer að hugsa um hvað þessir sjóræningjar af skipinu séu að gera hér á Grænlandi, af hverju þeir hafi stoppað þar. Verðir eru á mörgum stöðum, þeir koma auga á Jón og reyna að handsama hann, sem tókst þó ekki. Hann gengur inn á krá og sér sjóræningjana sem voru á skipinu og heyrir að þeir hafi rænt gullkistlinum, sem tilheyrir Noregi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=