57 Jón hinn mikli JÓN ANTON GUÐMUNDSSON, 10 ÁRA Dag einn kom konungur frá Noregi til Íslands, sá hét Jón, kallaður Jón hinn mikli. Hann kom hingað til Íslands vegna þess að það var stríð í Noregi. Með honum voru tuttugu fylgdarmenn, til að passa upp á hann og hjálpa honum að byggja upp Kóngshól, þar sem hann vildi setjast að. Einn daginn kom skip upp í fjöruna hjá Kóngshól og af skipinu komu þrír menn og héldu þeir á torkennilegum hlut. Jón faldi sig á bak við stein rétt hjá skipinu til að sjá betur hvað væri þar á seyði á meðan fylgdarmenn hans voru önnum kafnir við að byggja upp Kóngshólinn góða. Þegar Jón komst nær skipverjunum sá hann betur hvað þessi torkennilegi hlutur var, þetta var falleg gullkista. Mennirnir stefndu upp á Bóndhól, sem er hóll við hlið Kóngshóls og þar grófu þeir kistilinn. Síðan fóru þeir aftur í skipið sitt, en það sem þeir vissu ekki var að Jón hinn mikli var búinn að lauma sér með. Hugðist hann rannsaka af hverju þeir voru með gullkistilinn sem þeir grófu á Bóndhól. Svo stefndi skipið á haf út. Sér þá Jón hurð meðan þeir voru uppteknir við að sigla skipinu. Jón stóð upp, gekk að hurðinni og opnaði hana, þar sá hann að mennirnir þrír voru þjófar, því að herbergið var fullt af peningum og silfri. Allt í einu heyrði Jón þungt fótatak nálgast. Jón flýtti sér ofan í gamla kistu rétt hjá og faldi sig þar ofan í. Dyrnar opnast og inn gengur gamall karl með skegg, sjóræningjahatt og sverð. Hann gengur að borði, sest þar og telur gullpeninga. Jón gægist upp úr kistunni til að sjá betur hvað er á seyði, þá sér hann að sjóræninginn er með kort og ferð hans sé heitið til Grænlands og þar ætli hann að mæla sér mót við vini sína. Þegar hann er búinn að sjá nægju sína, lokar hann kistunni aftur, heyrist þá ískur.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=