Risastórar smásögur 2026

54 Gabríel labbar að afgreiðslunni og kaupir tvo popppoka og tvær gosflöskur. Hann labbar svo að bíósalnum og leitar að Gyðu. Eftir örstutta stund finnur hann hana og labbar til hennar, sest hjá henni og réttir henni poppið og gosið. - Hvenær byrjar myndin? spyr Gabríel. - Ég held að hún sé að byrja, segir Gyða og þögn kemur yfir þau. Myndin byrjar og Gabríel getur ekki mikið verið að horfa á myndina út af Gyðu. Hann er dáleiddur af henni en þegar hún lítur á hann þá lítur hann snöggt undan og horfir á myndina. Þegar myndin klárast henda þau ruslinu og fara út. Þegar þau koma út er veðrið gott og fallegt. - Gyða, viltu koma í göngutúr niður á bryggju? - Já, já, svarar Gyða, rjóð í kinnum. Þau ganga í þögn í smástund og svo allt í einu spyr Gabríel Gyðu: - Gyða, sannleikann eða kontór? - Sannleikann. - Ertu skotin í einhverjum, já eða nei? - Ehm … sko … já reyndar, en ég segi ekki hverjum. - Ókei. En nú þú. - Sannleikann eða kontór? spyr Gyða. - Sannleikann. - Ókei, ég spyr þess sama og þú. - Já, ég er skotinn í einhverri. - Hverri? spyr Gyða spennt. - Það ert þú, segir hann. - Ég … ehm … ertu að meina það? - Já, segir Gabríel. Gabríel labbar hratt að bekk sem er nálægt bryggjunni og sest. Það er kyrrt og rólegt úti. Gyða kemur og sest við hliðina á Gabríel og horfir á hafið.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=