Risastórar smásögur 2026

53 og leggur af stað út. Gyða stendur í forstofunni. Hún sér Gabríel labba út úr skólanum. Ég verð að gera þetta núna, ég spyr hann. Gyða hleypur til Gabríels. Hjartað slær hratt og henni finnst Gabríel vera heila eilífð að svara. - Gabríel, viltu koma í bíó í kvöld ? spyr Gyða feimin. - Já! segir Gabríel brosandi. En … en … en … klukkan hvað á ég að hitta þig við bíóið? spyr hann. - Kannski hálfátta? segir Gyða. - Ókei, segir Gabríel. Gabríel hjólar heim eins hratt og hann getur, til þess að græja sig fyrir kvöldið. Gabríel veltir fyrir sér hvort hann ætti að fara í sturtu eða ekki en hann þarf að borða. Hann ákveður að borða, fer niður og opnar ísskápinn. - Andskotinn, það er ekkert til. Gabríel fer og kíkir í frystikistuna, það er ekki einu sinni til brauð. Hann ákveður að hjóla út í búð og kaupa brauð og Nutella og hjólar aftur heim. Hann fær sér að borða og fer svo í sturtu. Þegar hann er búinn í sturtunni sér hann að klukkan er orðin sjö. Gabríel er tilbúinn að leggja af stað. Hann ætlar að labba í bíóið en gefa sér tíma svo hann svitni síður. Það sem Gabríel veit ekki var að þessi bíóferð á eftir að breyta lífi hans að eilífu. Gabríel og Gyða hittast við bíóið klukkan hálfátta. Það er logn og frost úti. - Eigum við að fara inn, Gabríel? - Já, en hvaða mynd erum við að fara á? - Ég man ekki hvað hún heitir. - Ókei, en viltu popp og gos, Gyða? - Já takk, ég er að deyja úr hungri. - Ég kem eftir smá með poppið og gosið. - Ókei, ég ætla á klósettið og fara svo og finna sæti uppi fyrir okkur, segir Gyða.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=