Risastórar smásögur 2026

52 Gabríel og Gyða hafa ekki mikið verið að tala saman. Er Gyða skotin í mér eða ekki? Hún er með svo fallegt ljóst hár og svo græn augu, hugsar Gabríel. Jón hvíslar að Gabríel. - Ertu skotinn í Gyðu? spyr Jón. - Nei, af hverju spyrðu? segir Gabríel. - Nei, bara, þú ert búinn að vera að stara á hana frekar lengi, segir Jón. -Ókei, eigum við að byrja? segir Gyða. - Já já. Ókei, en hvaða land eigum við að fjalla um? spyr Jón. - Eigum við ekki bara að spyrja Þórð? segir Gabríel. - Jú, gerum það. Þau ganga til hans og spyrja. - Hvaða land eigum við að velja? - Bara Ítalíu, segir Þórður. - Ókei, segja þau öll í kór. - Um hvað eigum við að fjalla á Ítalíu? spyr Gyða. - Hvað um matarmenninguna? svarar Gabríel. - Ég nenni ekki þessu verkefni, segir Jón. - Ég er sammála, segir Gyða og andvarpar. - Þegar ég fór til Ítalíu var mjög heitt og maturinn var rosa góður, segir Gabríel og hlær. - Ég elska pitsu, segja Gyða og Gabríel á sama tíma, hlæja hátt og horfast í augu. Gyða brosir og hugsar: Af hverju ertu samt blautur? Rauða hárið er enn rennandi og einn og einn dropi hefur fallið á veggspjaldið. Þau vinna verkefnið og klára það. Bjallan hringir. - Skólinn er búinn, segir Þórður. Gangið frá og farið heim. Gabríel gengur hratt fram í forstofuna og klæðir sig í skó og úlpu

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=