Risastórar smásögur 2026

51 Skólinn er að byrja og allir krakkarnir þreyttir eftir sumarfríið. Gabríel labbar inn í skólastofuna, rennandi blautur. - Af hverju ertu blautur? spyr Jón, sem er nýorðinn vinur Gabríels. - Ehm, ég datt bara á leiðinni í skólann, svarar Gabríel pirraður. Gabríel gengur hratt að stólnum sínum og sest í hann. - Gabríel, er í lagi? spyr Jón. - Ha? Já já. Inn í stofuna gengur Þórður kennari. - Hæ krakkar, hvernig var sumarfríið? - Bara fínt, segir Gyða. Hún er búin að vera í skólanum í svona eitt og hálft ár. Fyrstu tímarnir í dag eru hópverkefni í landafræði. - Hverjir eru saman í hóp? spyr Lilja. Þórður kennari lítur yfir bekkinn. Gyða lítur á Gabríel. Hana langar að vera með Gabríel í hóp þótt hann sé blautur, hann er bara svo gáfaður og svo sætur með þetta rauða hár. En hún þorir ekki að rétta upp hönd til að segja að hana langi til að vera með honum í hóp. Gyða er oftast í gallabuxum og svörtum stuttermabol og Adidas-skóm. Þórður segir að það verði sex hópar. Hann talar og talar og skipar í hópana þangað til það eru bara þrír krakkar eftir: Gabríel, Gyða og Jón. - Ókei, þá eruð þið saman í hóp, segir Þórður. - Verkefnið virkar þannig, að þið eruð að fara að búa til plakat um eitt land í Evrópu. Núna byrjum við, segir Þórður. S ú r t n a m m i SESSELJA LÓA ÞÖLL HALLDÓRSDÓTTIR, 12 ÁRA

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=