Risastórar smásögur 2026

43 skreið og dróst lengra og lengra aftur úr. Nokkrum klukkustundum seinna voru þau loksins komin í Myrkvaskóg, í leit að kánurót. Þau leituðu og leituðu en fundu ekkert og voru við það að gefast upp þegar einhver potaði skyndilega í bakið á Október sem hrökk við og leit aftur fyrir sig. Þarna stóð pínulítill brúnn pókemon með stórt kúlulaga sætt trúðanef og sagði með skærri röddu: „Ég heiti Máni! Ég vildi bara spyrja að hverju þið eruð að leita?“ „Við erum að leita að kánurót,“ sagði Október. „Ó, en þið heppin. Ég er einmitt með eina hér í pokanum mínum góða.“ Og svo rétti hann fram pokann. „AH, TAKK FYRIR!“ Þruma tók rótina upp, braut hana opna og út úr henni poppaði lítill, glær, bleikfjólublár, skínandi kristall sem lenti í höndum Október. „TAKK ÓGEÐSLEGA, ÓGEÐSLEGA MIKIÐ!!!“ sögðu þau öll í einum kór. Síðan byrjuðu þau að labba heim aftur og voru bara búin að taka svona þrjú skref þegar Október og Lárus föttuðu að Þruma var horfin. Þau leituðu út um allt, bak við tré, stóra steina og svo á bak við þéttan runna þar sem þau sáu Þrumu og annan pókemon sem þau þekktu ekki. Þetta var drómapókemon, sem þau höfðu aldrei séð áður. Hann var lítill, bleikur og hræðilega sætur. Öllum í hópnum fannst hann svo sætur að þau gátu ekki hætt að stara. „Oooo, hann er svo sætur!“ sögðu þau öll í kór. Á meðan þau dáðust að nýja vininum teygði annar pókemon sig út úr runnanum. Hann var eins og tvíburi hins, nema fjólublár. Hann smeygði litlu hendinni sinni ofur varlega ofan í bakpokann hennar Október og tók orkukristalinn án þess að nokkur yrði þess var. Á bak við þúsund ára gömlu trén við enda Myrkvaskógs voru Október og Þruma labbandi á leið heim. Eftir dálítinn spöl stansaði Október og svo Þruma. Þær virtu fyrir sér gömlu trén. Eftir dágóða stund birtist svo Lárus loks, skríðandi á sínum venjulega hraða, eins hratt og hann gat skriðið. Október mundi þá allt í einu eitthvað og sagði: „Ég er með glyttusalat!“ Hún tók bakpokann af sér og sá að kristallinn var horfinn. „Hann er ekki hérna!“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=