38 2. PARTUR: BJÖRGUNIN Inni í litlum sjávarhelli, vinstra megin við Lúkasarfjörð, lá blár skjaldbökupókemon steinsofandi innst í dimma hellinum. Hann hét Lárus og hér hafði hann átt heima í þrjú og hálft ár. Lárus hrökk upp úr svefni við ógurlega dynki og hvelli. Hann synti út úr hellinum sínum til að athuga hvað væri eiginlega um að vera og sá þrumur og eldingar í þykku skýjunum. Í glömpum þrumu- veðursins sá hann skemmtiferðaskipið. Fremsti hlutinn nú kominn á kaf. Þegar hann synti nær heyrði hann öskur frá farþegum skipsins. Tíminn var naumur, hann synti í átt að bænum á feiknahraða. Þegar upp á land var komið flýtti hann sér eins hratt og hann gat. Sem var alls ekki hratt þar sem hann var skjaldbökupókemon. Loks kom hann að litlu gömlu grænu húsi sem stóð rétt fyrir utan
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=