37 1. PARTUR: SKIPIÐ Einn góðan veðurdag, skammt frá smábænum Lúkasarfirði, var hvítur rostungspókemon, sem hét Ródolf, að synda í rólegheitum með uppáhalds Abba-lagið sitt, SOS, í airpodinum sínum, þegar stormur skall skyndilega á. Þoka byrjaði að myndast og rigning helltist niður. Allt í einu birtist skemmtiferðaskip fyrir aftan hann. Skipstjórinn á skemmtiferðaskipinu var upptekinn í partýstandi svo hann sá ekki Ródolf og Ródolf sá skemmtiferðaskipið ekki heldur. Það kom nær og nær og hann fattaði ekki að það væri risastórt skemmtiferðaskip fyrir aftan hann. Það kom nær og nær og Ródolf varð ekki var við það fyrr en skipið rétt svo snerti hann. Sjálfsvarnarviðbrögðin hans fóru í gang og út úr sporðinum skutust fjórir hnífbeittir, langir gaddar sem stungust inn í skipið og rifu gat á það. KRASS! Skipið klessti á hann. Ródolf rotaðist og byrjaði að sökkva dýpra og dýpra ofan í hafið þangað til hann var kominn niður á hafsbotn. HVÍTI BJARMINN OG KRISTALLINN INGA MODESTA SAMUEL, 10 ÁRA
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=