Risastórar smásögur 2026

36 Þegar þær komu að girðingunni sáu þær að þetta var folaldið en það var fast í girðingunni. Gaddavír hafði flækst utan um einn fótinn. Folaldið leit upp þegar Depla kom geltandi en folaldið hreyfði sig ekki út af gaddavírnum, það var greinilega mjög þreytt. Inga grét af gleði við að finna folaldið en var líka hrædd um að það væri illa slasað. Hún reyndi að leysa það úr girðingunni. Ingu fannst erfitt að losa gaddavírinn af því að hún vildi ekki að folaldið myndi meiðast meira en henni tókst það að lokum. Folaldið var með lítið sár á hægri afturfætinum en var annars í lagi því það haltraði ekki. Inga ákvað á þessari stundu að folaldið fengi nafnið Happadís af því það var heppni að Inga fann hana lifandi og ómeidda. Þær gengu svo allar fjórar heim saman og tengdust sterkum böndum eftir að þær lentu saman í þessu mikla ævintýri. Þegar Efling sá Happadísi og Ingu hljóp hún á móti þeim hneggjandi og þakkaði Ingu vel fyrir með því að leggja snoppuna á öxl hennar. ENDIR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=