35 brátt heyrðu þær þrusk í runna. Runninn var stór og þykkur og var mjög skammt frá. Þær hlupu allar af stað til að þess að gá hvort þetta væri folaldið. Þær sáu eitthvað dökkt í runnanum og voru ekki vissar um hvað þetta gæti verið, en þegar þær komu að runnanum stökk kind fram. Kindin hafði þykka ull og var mórauð með stór horn. Við þetta hrukku Inga og Dísa í kút en Depla varð mjög spennt og hljóp á eftir henni. Dísa og Inga hlupu af stað á eftir Deplu en náðu henni ekki og reyndu að kalla á hana til baka þegar þær sáu eitthvað hreyfast nálægt girðingunni skammt frá. „Hvað er þarna?“ spurði Dísa „Ég veit það ekki, en hlaupum og athugum hvað það er,“ svaraði Inga. „En hvað ef þetta er refur?“ sagði Dísa. „Þetta er ekkert refur,“ sagði Inga.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=