Risastórar smásögur 2026

34 Hryssan og folaldið Það var einu sinni hryssa sem hét Efling. Efling var fylfull með sitt fyrsta folald og hún elskaði að hlaupa um túnið. Hún var svartskjótt á litinn með mjög mjúkan feld, fallegt fax og tagl. Inga var tíu ára stelpa sem elskaði hesta, hún var með ljóst, sítt hár og var hraust og dugleg. Hún átti Eflingu og hún elskaði hana mjög mikið. Þessi saga gerist í Brekkukoti sem er sveitabær á Íslandi og Inga á heima þar. Hún átti vinkonu sem hét Dísa. Ingu dreymdi um að eignast folald sem væri bleikálótt. Einn daginn fór Inga að gera morgunverkin, að kemba hestunum, moka skít undan þeim og gefa hestum hey. Þá sá hún að Efling var komin að því að kasta. Hún Inga hoppaði um af gleði, hún var svo spennt. Vonandi verður folaldið bleikálótt, hugsaði Inga. Efling lagðist niður og folaldið kom mjög fljótt út. Folaldið var ótrúlega stórt miðað við önnur folöld sem Inga hafði séð. Folaldið var bleikálótt hryssa. Það var greinilega mjög duglegt og náði fljótt tökum á því að standa í fæturna og var farið að hlaupa fljótlega eftir að það fæddist. Folaldið var með langa fætur og reistan háls, það komst fljótt upp á lag með að sjúga spenana. Næsta morgun hljóp Inga út, full af spenningi að hitta Eflingu og nýja folaldið en þá sá hún ekki folaldið. Inga var mjög áhyggjufull og fór að hágráta og hringdi í Dísu. Þegar Dísa kom fóru þær saman að leita að folaldinu. Þær gengu langt og lengi en sáu hvorki tangur né tetur af folaldinu. Þá datt Ingu í hug að biðja hundinn sinn um að hjálpa þeim við leitina. Hún kallaði hátt og snjallt á hundinn sinn, hana Deplu. Depla hljóp mjög hratt og var fljót að koma til Ingu. Depla þefaði í allar áttir og leiddi Ingu á eftir sér. Þær leituðu um allar jarðir og HEIÐNÝ JÓNASDÓTTIR, 8 ÁRA

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=