Risastórar smásögur 2026

33 sólkerfi. Lísa hljóp inn til mömmu sinnar og spurði hvort hún mætti fara með þeim til plánetunnar Surenus. Mamma hennar hélt að Lísa væri eitthvað að grínast, benti á Særos og sagði hlæjandi: „Þú veist, elskan mín, að það eru ekki til geimverur, en allt í lagi, bara ekki gleyma að taka bangsann þinn með.“ Lísa lofaði að taka bangsann sinn með og fór með geimverunum. Þau flugu frá jörðinni og fóru framhjá mörgum plánetum eins og Júpíter, Mars og Venus. Lísa spurði hvort það væru þúsundir sem ættu heima á Surenus, en Særos svaraði að þar væru milljónir. Þau fóru að synda í geimverusundlaug sem var allt öðruvísi en Lísa þekkti á jörðinni. Sundlaugin á Surenus var í gati ofan í jörðinni, hún var græn, köld og slímug. Það var smá eins og að vera í köldu slímugu baði sem Lísu fannst mjög skrítið. En svo var kominn tími til að fara heim í geimflauginni. „Hvernig var úti í geimnum, Lísa mín?“ spurði mamma brosandi þegar hún sá Lísu koma inn í eldhúsið. „Gaman,“ svaraði Lísa og flissaði. Lísa heimsótti Særos oft eftir þetta í lítilli geimflaug sem geimverurnar gáfu henni. Geimflaugin var rauð með kringlóttum gluggum eins og á kafbát. Mömmu grunaði aldrei að Lísa væri í alvöru að fara út í geim, hún hélt að Lísa væri að fara út að leika með „bangsann“ sinn Særos. Mamma sagði oft við Lísu: „Þú verður örugglega rithöfundur með allar þessar sögur í höfðinu.“ En Lísa brosti bara og fór í næsta ævintýri í geimflauginni sinni. ENDIR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=