32 „Heitir þú Særos?“ spurði Lísa. Geimveran veifaði fálmurunum hratt fram og til baka. Snemma næsta morgun fóru Lísa og Særos út í garð, þá heyrðu þau allt í einu mikið suð og hávaða. Þau litu upp og sáu geimskip birtast. Út úr því komu nokkrar geimverur svipaðar í útliti og Særos. „Blíb blúb,“ sögðu geimverurnar eins og Særos. Ein geimveran var með tæki um hálsinn sem hún talaði í: „Blíb blúb,“ sagði hún og það komu íslensk orð út úr tækinu svo Lísa gat loksins skilið það sem geimverurnar voru að segja. Þessar verur voru komnar á jörðina til að ná í Særos og fara með hann heim. Særos spurði pabba sinn að einhverju sem Lísa skildi ekki. Pabbi Særos var stór appelsínugul vera, sem sagði að Særos vildi bjóða Lísu í heimsókn á þeirra plánetu sem héti Surenus og væri í öðru
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=