29 Lísa og magnaða veran Lísa var nýbúin að eiga níu ára afmæli. Það var komið kvöld og hún var að lita mynd heima hjá sér. Þegar hún átti að fara að sofa þá fann hún allt í einu jarðskjálfta og heyrði í einhverju fyrir utan gluggann hjá sér. Hún vissi að hún mátti ekki fara ein út, en var svo forvitin að vita hvað þetta væri, þannig að hún stalst til að kíkja. Í garðinum hennar hafði lent risastór hnöttur, sem var loftsteinn. Hún hljóp út að skoða hvað þetta væri, en fór mjög varlega því hún hafði heyrt að allt sem dettur niður af himnum getur verið heitt, þannig að hún ákvað að fara aftur inn og reyna að sofna. ÍSABEL TALÍA CAMBRAY ALEXDÓTTIR, 9 ÁRA
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=