Risastórar smásögur 2026

28 Dýrin ákváðu að kenna íkornanum lexíu til að hann hætti að vera svona vondur og leiðinlegur við alla. Þau þóttust vera drulluskrímsli. Þau veltu sér upp úr drullu og svo stóð Birta björn ofan á Hákoni hákarli, Lúlli lamadýr stóð ofan á Birtu birnu, Solla svín stóð ofan á Lúlla lamadýri, Gaggi gæsasteggur stóð ofan á Sollu svíni, Úlfína úlfynja stóð ofan á Gagga gæs og efst var Bía býfluga. Nú litu þau út eins og risastórt drulluskrímsli. Þau fundu íkornann, hann var að leita að nýjum dýrum til að stríða. Þau læddust upp að honum og Úlfína úlfynja urraði lágt. Hinn mikli íkorni sneri sér við og sá drulluskrímslið. Hann varð svo hræddur að hann fór að gráta og bað skrímslið um að meiða sig ekki. Allt í einu breyttist skrímslið. Bía býfluga flaug af Úlfínu úlfynju, Úlfína úlfynja hoppaði af Gagga gæsastegg, Gaggi gæsasteggur hoppaði af Sollu svíni, Solla svín stökk af Lúlla lamadýri og Lúlli lamadýr hoppaði af Birtu birnu og Birta birna hoppaði af Hákoni hákarli. Þá sá íkorninn að þetta var ekki drulluskrímsli heldur dýrin sem hann hafði strítt. Hann fékk samviskubit og lofaði að stríða þeim aldrei aftur. Dýrin fyrirgáfu honum og íkorninn varð rosalega glaður. Eftir þetta varð íkorninn aftur hann sjálfur. Hann varð hjálpfús, hætti að vera leiðindapúki og breytti nafninu sínu aftur í Íkarus. Dýrin voru mjög ánægð með breytinguna og allir urðu vinir. ENDIR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=