27 Hinn mikli íkorni Einu sinni var hneta. Þetta var engin venjuleg hneta, þetta var galdrahneta. Þessi hneta var gulllituð og átti heima í galdratré. Einn daginn fann Íkarus íkorni galdrahnetuna og át hana upp til agna. Þá breyttist hann í galdraíkorna. Hann hljóp eins og vindurinn og flaug eins og elding. Hann synti ofan í gosbrunna og hann gat synt alveg stórkostlega. Hann gat allt eftir að hann borðaði galdrahnetuna og hann breytti nafninu sínu í Hinn mikli íkorni. En í staðinn fyrir að nota galdrakraftinn til þess að vera góður breyttist hann í montinn leiðindapúka. Hann varð leiðinlegur ofuríkorni sem stríddi öllum dýrum sem hann hitti. Einn daginn rakst íkorninn á Hákon hákarl. Hann stríddi Hákoni og var hrikalegur dóni. En það hefði hann ekki átt að gera. Hákon varð öskureiður og reyndi að borða Hinn mikla íkorna sem hljóp í burtu og frussaði á Hákon hákarl. Hákon hákarl ærðist og leitaði að öllum hinum dýrunum sem íkorninn hafði verið vondur við. Það voru mörg dýr. Til dæmis Gaggi gæsasteggur, Solla svín, Bía býfluga, Birta birna, Lúlli lamadýr og Úlfína úlfynja. REBEKKA ÁSTA HRÓLFSDÓTTIR, 8 ÁRA MYNDHÖFUNDUR: RAKEL EVA HRÓLFSDÓTTIR, 12 ÁRA
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=