2. kafli „En annars, hvar fannstu þessa flugmiða? Ég hélt við værum búin að leita alls staðar!“ sagði mamma. Pabbi náði í símann sinn og sýndi okkur, þar stóð: Flug með stórri þyrlu hvert sem þú vilt! Aðeins á morgun! Gríptu tækifærið og farðu í frí! „Jóhannes Kristinn, ég trúi þessu ekki,“ sagði mamma og gapti af undrun. Þá sagði Siggi: „En þetta er þyrla!“ „Já, og hvað með það,“ sagði ég við hann. „Tja …“ sagði hann. „Hvað?“ sagði ég. „Æ, ekkert,“ sagði hann þá. „Jæja, krakkar,“ sagði pabbi síðan. „Nú skuluð þið pakka.“ Við fórum upp í herbergi og pökkuðum. Nokkru síðar vorum við öll búin að pakka. Þá sagði mamma: „Eigum við að hafa kósíkvöld í kvöld?“ „Já,“ sögðum við öll. „Heyrðu, Jói,“ sagði mamma síðan. „Má ég sjá aðeins auglýsinguna aftur, þú veist með þyrlunni?“ „Öööööööö, já já,“ sagði pabbi og rétti mömmu símann sinn. Mamma skoðaði og skoðaði en allt í einu saup hún hveljur. „Hvað?“ sögðum við öll. Mamma sýndi okkur símann þar stóð: ÞAÐ MÁ ALLS EKKI VERA MEÐ GÆLUDÝR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Mamma fór að snökta. Hún getur aldrei hugsað sér að þær komi ekki með. Ekki er allt sem sýnist þegar betur er að gáð 16
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=