13 Formáli Hæ, ég heiti Emelía, ég er tíu ára og finnst rosalega gaman að ferðast. Ég á tvo bræður: einn lítinn og einn stóran. Sá stóri er sextán ára og byrjaður í menntaskóla og heitir Arnaldur en hinn er sjö ára og heitir Sigurður en er alltaf kallaður Siggi. Svo á ég mömmu og pabba. Mamma mín heitir Hanna og pabbi minn heitir Jóhannes en er kallaður Jói og síðast en ekki síst eru Snúður og Snælda, kettirnir okkar. Þeir eru svo sætir! 1. kafli Óvæ ntar fréttir plús klikkuð gleði Ég hjólaði heim úr skólanum, gekk frá hjólinu mínu og dinglaði bjöllunni en enginn kom. Ég vissi að það tók stundum svolítinn tíma að koma til dyra, því að húsið mitt er þrjár hæðir (með háaloftinu), en svo opnuðust dyrnar. Siggi stóð í dyrunum. „Halló, Emelía,“ sagði Siggi og brosti. „Halló,“ sagði ég á móti, gekk inn, hengdi töskuna á snagann, labbaði í átt að stofunni og ætlaði að fara að opna en dyrnar voru læstar. Ég leit inn um gluggann á hurðinni. Mamma og pabbi lágu með nefið ofan í símanum og mamma með tölvuna á hnjánum og þarna voru Snúður og Snælda í hnipri. Ég bankaði á dyrnar, mamma stóð upp og opnaði fyrir mér. Ferðin til Kólumbusareyju INGILEIF TEITSDÓTTIR, 10 ÁRA
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=