8 „Er kötturinn í þessu búri?“ spyr mamma. „Svo er víst,“ svarar karlinn. „Og ég heiti Hlynur Mosi Bjarkason.“ Hann lítur síðan beint á Ásu. Augnaráðið er fast en samt hlýtt. „Og þú ert þá Ása?“ „Uuu… ja, já?“ svarar hún eins og hún gæti ekki með nokkru móti munað nafnið sitt. Karlinn, já, eða Hlynur Mosi Bjarkarson, hlær og lítur svo á mömmu. „Búið þið einar hér?“ „Já, pabbi Ásu býr í Ástralíu,“ ansar hún með þjósti. Mamma verður alltaf dálítið önug þegar talað er um pabba. „Ég skil,“ segir hann. „Viljiði nokkuð líta á köttinn?“
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=