LÍKAMINN Auðvitað veltið þið fyrir ykkur því sem er að gerast í kroppnum á þessum aldri. Það er ekkert SMÁVEGIS sem gengur á. Hlutföllin í skrokknum breytast, útlimirnir lengjast miðað við búkinn, þú ferð að svitna meira og getur fengið bólur í andlitið og reyndar miklu víðar. En þetta eru allt þroskamerki. Málið er bara að líkaminn er farinn að framleiða kynhormón eins og honum væri borgað fyrir það, til þess að breyta barnslíkama í fullorðinslíkama. KYNHORMÓNIN Kynhormón eru efni sem líkaminn sendir frá sér til að hefja kynþroskann og setja breytingar af stað í honum. Estrógen og prógesterón eru kynhormón sem hafa m.a. áhrif á tíðahring, stækkun brjósta og fleiri líkamlegar breytingar. Testósterón er kynhormón sem hefur m.a. áhrif á sæðismyndun, hraðari vöðvamyndun og raddbreytingar. Öll þessi hormón eru til í öllum líkömum en í mismiklu magni og með mismunandi áhrif. Þegar barn fæðist er því oftast úthlutað kyni út frá sýnilegum kyneinkennum. „Það er strákur“ er oft sagt þegar barnið er með typpi eða „það er stelpa“ þegar barnið er með píku. Kyneinkenni vísa til litninga, kynkirtla og líffræðilegra sérkenna manneskju eins og æxlunarfæra og uppbyggingar kynfæra. Fólk sem er með ódæmigerð kyneinkenni er intersex. Intersex einstaklingar fæðast með einkenni sem eru ekki algjörlega kven- eða karlkyns. Þá getur hormónastarfsemi verið í ósamræmi við kynfærin sem eru til staðar, innri eða ytri kynfæri sem eru óhefðbundin o.s.frv. Stundum uppgötvast ekki að einstaklingar séu intersex fyrr en þau fara að taka út kynþroska eða þegar þau vilja reyna að eignast börn. Kynvitund snýst ekki um kynfæri, líffræði eða útlit, heldur um hvernig við upplifum eigið kyn. Hún getur verið sú sama og það kyn sem okkur var úthlutað við fæðingu eða önnur. Sum upplifa sig sem karla, önnur sem konur. Sum upplifa sig sem blöndu af hvoru tveggja, og önnur hvorki sem konu né karl. Fólk er kallað sís eða sís-kynja þegar kynvitund þess samræmist því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Að vera trans þýðir að kynvitundin samræmist ekki því kyni sem var úthlutað við fæðingu. Kynsegin fólk upplifir sig hvorki sem karl né konu, eða ekki eingöngu sem annað hvort, og fellur undir svokallaða trans regnhlíf. 7
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=