Markmiðið er ekki að segja ykkur hvað þið eigið að gera, heldur að hjálpa ykkur að treysta eigin tilfinningum, virða mörk og taka upplýstar ákvarðanir. Það er eðlilegt að upplifa forvitni, óvissu, spennu eða að vera alls ekki tilbúin. Þekking getur skapað meira öryggi í samskiptum, ákvörðunum og þar með eigin líðan. Höfundar Ásdís Olsen og Karl Ágúst Úlfsson Hér skoðum við nokkrar grundvallarspurningar: • Er kynþroskinn alltaf fagnaðarefni? • Hvað finnst þér um sjálfsfróun, kelerí, munnmök og samfarir? • Er kynhvöt til gagns og gamans eða getur hún líka verið vandræðaleg? • Hvernig skilgreinum við kynhneigð? • Af hverju óttumst við höfnun? • Er skammarlegt að nefna eigin líkamshluta? • Af hverju berum við okkur svona mikið saman við aðra? • Skiptir stærðin máli? • Hver ræður því hvað þú sérð þegar þú lítur í spegil? • Hvernig vitum við hvar mörkin liggja? KYNLÍF 40708 Í þessu blaði er fjallað um kynlíf í víðri merkingu – kynhvöt, sjálfsfróun, kossa, kelerí, líkama, tilfinningar, sambönd, smokka, mörk og margt fleira. Við skoðum m.a. skapsveiflur, óöryggi, spennu, ást, höfnun, sjálfsmynd og samskipti. Einnig pælum við í þeim skilaboðum sem við fáum úr samfélaginu og fjölmiðlum um líkama, kynlíf og það að „passa inn“.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=