Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

8 ER SVITALYKT SEXÍ? SALTUR SVITI Það eru til tvenns konar svitakirtlar. Önnur gerðin er um allan líkamann og þeir kirtlar starfa í okkur frá vöggu til grafar. Þeir gefa frá sér saltan vökva sem hefur það hlutverk að kæla húðina þegar okkur verður of heitt. Svitinn í handarkrikunum er aðallega saltur sviti. KYNÖRVUNARSVITI Hinir svitakirtlarnir taka til starfa þegar við verðum kynþroska. Þeir finnast í þyrpingu í kringum eyru, geirvörtur, handarkrika og við kynfærin. Þessi sviti er þykkari en salti svitinn og tengist hormónabreytingum, tilfinningum og kynörvun. HVERNIG LÍDUR PÉR NÚNA? - – PAD ER FULL ÁSTÆDA TIL AD SVITNA - - - Óþægileg svitalykt getur svo komið í kjölfarið þegar svitinn kemst í samband við önnur efni í umhverfinu, eins og bakteríur á húðinni. Einn og sér er hann tær og lyktarlaus. Stundum líður þér frábærlega. Stundum alls ekki. Og stundum veist þú ekki alveg hvað er í gangi. Það er eðlilegt að upplifa alls konar tilfinningar á þessum tíma. Hvernig líður þér í dag? KANNASTU VID PETTA? -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=