BREYTINGIN MIKLA! BREYTINGIN MIKLA! Þú hefur eflaust greint miklar breytingar á líkama þínum. Þessar breytingar verða m.a. vegna hormóna sem senda boð til ýmissa hluta líkamans um hvernig þeir eigi að vaxa. Athugaðu að breytingarnar á unglingsárunum eru ekki alltaf í rökréttu samhengi. Vöxtur einstakra líkamshluta getur verið mishraður og vaxtarlagið getur allt í einu breyst. Fólk á þínum aldri óskar þess stundum að vera „venjulegt“. En málið er bara að það er ekkert „venjulegt“ til í þessu sambandi. Best er að sætta sig við það strax. orðið táningur merkir í raun það sama og enska orðið teenager? Enska orðið kemur af endingunni -teen ... thirteen, fourteen, fifteen o.s.frv. Þess vegna er það oft notað um 13–19 ára. En unglingsár snúast ekki bara um tölur – heldur líka um þroska, breytingar og nýtt hlutverk í lífinu. ALEX AF HVERJU ER LÍKAMinn SVONA AUMUR? SVARAR SPURNINGUM Líkaminn breytist rosalega mikið á stuttum tíma. Þú getur t.d. lengst um nokkra millimetra á einni nóttu. Stundum er engu líkara en hópur af strekkjurum mæti á næturnar og teygi og togi unglingana sundur og saman. Kannastu við að líkaminn sé aumur og stirður á morgnana? Þá veistu hvað hefur gerst. Líkaminn er að breytast og þroskast – einn daginn áttarðu þig á að þú ert komin með breiðari mjaðmir eða herðar ... smám sama áttar þú þig á kynhneigð þinni en ef þú ert í vafa þá er það alveg eðlilegt. Á sama tíma eru vinirnir líka á ólíkum stað, sum breytast hratt, önnur hægar. Sum velta kynhneigðinni mikið fyrir sér og öllu sem henni tengist, á meðan önnur velta henni lítið sem ekkert fyrir sér. Ýmsir líkamshlutar verða nú næmari en áður. Þessi nýja næmni getur komið á óvart. Allt í einu geta eyrun, hálsinn eða geirvörturnar brugðist öðruvísi við snertingu en áður. Kynfærin verða líka næmari og líkaminn getur sýnt viðbrögð sem þú áttir ekki von á. Það er eðlilegur hluti af kynþroska. Svo verða kynfærin loðin og lifandi – og þau þurfa sína athygli þó það sé auðvitað nokkuð mismunandi frá einum einstaklingi til annars. 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 ár Hvenær breytist manneskja úr því að vera barn í táning – og loks fullorðin? HVENÆR ER ÉG HVAD? - 6 Vissir þú að …
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=