5 LÍKAMLEGAR BREYTINGAR Þegar kynþroskinn helltist yfir mig var eins og ég hefði vaknað upp í rússí- bana á fleygiferð og lengi vel vissi ég Kynþroskinn kemur ekki allur í einu. Sem betur fer. Kynþroskaaldurinn er nokkurra ára tímabil og breytingarnar sem hann hefur í för með sér verða ekki allar á sama tíma. Þær gerast heldur ekki í sömu röð hjá öllum en það sem gerist er yfirleitt eitthvað af þessu sem hér er nefnt: ekki hvort ég var að koma eða fara. Það teygðist svo á mér í dýfunum að buxurnar sprungu utan af mér. Ég kom ekki upp orði án þess að raddböndin færu í kross. Typpið tók völdin af viljanum og fór að stjórna draumum og nánast öllu sem ég gerði. Það var eins og hausinn hefði orðið fyrir eldingu. Allt í einu var ég með milljón hugsanir og tilfinningar í gangi á sama tíma — spennu, skömm, forvitni, pirring. Ég vissi varla hvað var hvað. Hvað var í gangi? Var þetta skemmtilegt eða leiðinlegt, leið mér vel eða illa, var ég á uppleið eða niðurleið, fór mér aftur eða fram? GÓÐIR ÁHORFENDUR! HÉR ER ÞAÐ KOMIÐ — ÞAÐ SEM VIÐ HÖFUM ÖLL BEÐIÐ EFTIR: KYNÞROSKINN! GJÖRIÐ SVO VEL. GEFUM ÞVÍ GOTT KLAPP! Á unglingsárunum fer líkaminn í alls konar „uppfærslur“. Þær líta ekki eins út hjá öllum en geta meðal annars verið svona: • líkaminn breytir um lögun • vaxtarkippur • feitari húð og bólur • hár undir höndum • hár í kringum kynfærin • vaxtarverkir • breytt andlitsfall • brjóstin byrja að stækka • breiðari herðar • typpið stækkar • aukinn sviti og líkamslykt • næmur snípur • fyrstu blæðingar • ósjálfrátt sáðlát • skeggvöxtur • röddin breytist (mútur) Hvort sem þessar breytingar byrja seint eða snemma hjá þér, gerast hægt eða hratt, verða miklar eða litlar, þá er eitt alveg öruggt: Þær gerast á þeim tíma sem hentar líkama þínum best. Mundu að þú ert einstök manneskja. Í RÚSSÍBANA Á FLEYGIFERD Ég var eiginlega ekki alveg viss en þetta leiddi mig út í endalausar pælingar. - HVAD vAR EIGINLEGA Í GANGI? - HVENÆR GERAST TÍDINDIN? - KLAPP KLAPP VEI!
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=