Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

77 niður í tær. Ég var eiginlega skíthrædd um að hún mundi kjafta í einhvern, en hún var æðisleg og ég veit ekki hvað ég hefði gert án hennar. Hún róaði mig og kom svo með mér til læknisins. Læknirinn var líka alveg frábær og sagði mér að þetta væri allt trúnaðarmál. Hún sagði mér að klamydía væri algengur kynsjúkdómur og oft yrði maður ekki var við einkennin. Hún spurði hvort ég hefði útferð, hvort það væri sárt að pissa eða hvort blæðingar væru óreglulegar. Ég hafði ekki fundið fyrir neinu af þessu en læknirinn sagði að það þýddi ekki að ég væri ekki smituð. Ég var heppin að Dóri lét mig vita svo ég gæti farið í tékk. Læknirinn fékk þvagprufu hjá mér og sagðist þurfa að láta rannsaka hana. Ég hitti lækninn tveimur dögum síðar og fékk að vita að ég væri smituð. Ég hélt að ég væri viðbúin því versta en ég var það ekki og fór að gráta. Læknirinn var rólegur og sagði þetta ekki vera svo alvarlegt. Hún talaði lengi við mig og sagði að það væri mjög ólíklegt að ég yrði fyrir varanlegum skaða. Hún lét mig hafa sýklalyf og sagði mér að koma aftur eftir tvær vikur. Allt fór vel sem betur fer. Sýklalyfin virkuðu og ég losnaði við klamydíuna. Ég var líka svo heppin að eiga æðislega vinkonu og hafa frábæran lækni sem hjálpuðu mér í gegnum þetta og líklega var ég heppin að Dóri skyldi vera hreinskilinn við mig. Sem betur fer náði ég að jafna mig og taka prófin. Og svo sættist ég við Dóra og við töluðum um þetta og það var allt í lagi en ég fann að eitthvað hafði breyst. Við hættum saman, ég var ekki lengur hrifin af honum.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=