Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

KYNSJÚKDÓMAR ÖRUGGARA KYNLÍF Öruggara kynlíf snýst um … • að koma í veg fyrir þungun • að smitast ekki af kynsjúkdómum Besta vörnin er að nota smokk og töfrateppi! Kynsjúkdómar smitast í flestum tilfellum við samfarir eða munnmök. Þeir eru til leiðinda og vandræða og geta verið hættulegir. Algengastir hér á landi eru klamydía, kynfæraáblástur (herpes) og kynfæravörtur. Ef einkenni koma fram geta þau til dæmis verið sviði eða verkir við þvaglát, kláði eða útferð. HVAD ER HÆGT AD GERA? „Viku fyrir lokaprófin komst ég að því að ég gæti verið með klamydíu. Ég var búin að vera með strák á föstu í mánuð – hann var tveimur árum eldri en ég og ég var rosalega hrifin af honum. Þetta gekk allt mjög vel hjá okkur og eftir nokkrar vikur byrjuðum við að sofa saman. Fyrst notuðum við smokka af því ég ætlaði sko ekki að verða ófrísk. En þá fór Dóri að tala um að þeir gætu rifnað og að sér fyndist öruggara ef ég væri á pillunni. Ég byrjaði á pillunni og við hættum að nota smokka en það hefðum við ekki átt að gera. Eitt kvöldið kom Dóri í heimsókn frekar þungur og sagði mér dálítið sem breytti öllu. Hann hafði sem sagt verið með annarri stelpu áður en hann byrjaði með mér og oft sofið hjá henni án þess að nota smokk. Ég vissi að hann hefði verið með öðrum stelpum á undan mér en mér datt aldrei í hug að spyrja hann út í kynlífið með þeim – kannski vildi ég ekkert vita um það. Fyrrverandi kærastan hans hafði sem sagt verið með klamydíu og í ljós kom að hann var líka smitaður. Ég varð mjög hrædd og í uppnámi. Mér fannst erfitt að heyra þetta og vildi að hann færi. Ég þurfti tíma til að melta þetta. Um leið og Dóri var farinn fór ég inn í herbergi og setti á mig heyrnatól og fór að hágráta. Ég hugsaði ekki um annað en hvað fólk mundi segja, og hvað með prófin mín, og að ég væri búin að klúðra lífi mínu. Morguninn eftir talaði ég við bestu vinkonu mína. Mér fannst ég vera svo mikill hálfviti og ég skammaðist mín alveg SARA SEGIR FRÁ: KYNSJÚKDÓMAR HÆ! Margir kynsjúkdómar hafa engin einkenni, þess vegna er mikilvægt að láta kanna sig ef grunur vaknar. Hægt er að: - hafa samband við heilsugæslu - panta tíma á húð- og kynsjúkdómadeild Landsspítalans. Það er gert með því að panta tíma í gegnum Landspítalaappið, þar er spurningarlisti fylltur út. Að því loknu fær viðkomandi SMS og annaðhvort sækir sýnatökusett eða mætir í skoðun. Þjónustan er ókeypis fyrir ungmenni undir 18 ára, og þau geta farið í kynsjúkdómatékk án vitneskju foreldra nema eitthvað alvarlegt komi upp. - - 76

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=