78 HJÁLPARSÍMINN Þú getur tekið upp símann og hringt í 1717. Þetta er hjálparsími Rauða krossins og þar svarar fólk í símann sem er tilbúið að hlusta á þig og spjalla við þig um hvað sem er hvenær sem er. Ekki hika við að hringja ef þú þarft á góðum hlustanda að halda eða vilt spyrja einhvern ráða. Öll símtöl eru auðvitað trúnaðarmál. Einnig er hægt að leita aðstoðar á netspjallinu heilsuvera.is, á sjúkt spjall hjá sjukast.is, sem og hjá Berginu og Píeta. Ef þér líður oft illa og höndlar lífið ekki alveg, skaltu staldra við og athuga málið. Þér á ekki að líða illa og það er full ástæða til að bregðast við viðvarandi vanlíðan. Kannski ertu í einhverri tilfinningaflækju og þarft bara aðstoð við að greiða úr henni. Á unglingsárunum koma tilfinningasár oft upp á yfirborðið. Sum hafa lent í einelti eða ofbeldi. Önnur búa við erfiðar heimilisaðstæður þar sem áfengi veldur vandræðum. Stundum líður okkar nánustu bara illa og samskiptin geta verið erfið og niðurbrjótandi. Svo hafa margir krakkar lent í slysum eða öðrum áföllum sem geta valdið þeim vandræðum á unglingsárunum. Ekki sitja uppi með vandann. Þú þarft kannski bara að tala við einhvern sem þú treystir vel eða komast í nokkur viðtöl hjá sálfræðingi. Svo gæti verið gott að komast í hóp unglinga sem eru að kljást við svipaða hluti og þú. Að biðja um hjálp getur verið erfitt – en það er mikilvægt skref. Segðu bara hátt og skýrt: EF PÚ HEFUR ÁHYGGJUR Áhyggjur geta tengst ýmsu, til dæmis: - kynhneigð eða samböndum - kynsjúkdómum eða þungun - ofbeldi eða misnotkun - líðan, kvíða eða erfiðum hugsunum Það er alltaf hægt að leita sér aðstoðar, það er ljós í myrkrinu. Það er til fólk sem vill og getur hjálpað. HJÁLP! NÁMSRÁDGJAFINN Styður nemendur í alls konar málum, bæði persónulegum og tengdum námi. KENNARINN Hikaðu ekki við að spjalla við kennara sem þú treystir best um það sem íþyngir þér. Kennarar geta veitt ráðgjöf um hvert hægt er að leita ef þess er óskað. HVERT ER HÆGT AD LEITA ? 1717 HEIMA Foreldrar og forsjáraðilar geta verið mikilvægur stuðningur. Líklega þekkir enginn þig betur en þeir og þeir kunna örugglega að meta traustið sem þú sýnir þeim með því að trúa þeim fyrir tilfinningum þínum. Það getur skipt miklu máli að deila því sem þér liggur á hjarta með einhverjum sem þú treystir. " MÉR LÍDUR ILLA OG MIG VANTAR HJÁLP." - - SÁLFRÆDINGUR – FÉLAGSRÁDGJAFI Það gerir öllum gagn að spjalla við sálfræðing. Hann þekkir flest það sem getur valdið okkur vanlíðan og getur gefið okkur góð ráð. - - HJÚKRUNAR- FRÆDINGURINN Hjúkrunarfræðingurinn í skólanum þekkir margvísleg vandamál sem unglingar geta átt við að stríða. Hann veit líka hvert er best að snúa sér ef þú þarft á meiri aðstoð að halda. - NETID Það eru margar slóðir á netinu sem geta veitt gagnlegar upplýsingar. Sem dæmi má nefna attavitinn.is, astradur.is, heilsuvera.is og landlaeknir.is. - - – BIDDU UM ADSTOD! ER ALLT Í KLESSU? - - Það eru margar leiðir til að fá stuðning og ráðgjöf. Það er alltaf hægt að leita hjálpar, enginn þarf að takast á við erfiðar aðstæður einn.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=