75 Viltu vera örugg/ur/t? Þá skiptir smokkurinn máli. Smokkurinn er eina vörnin sem dregur bæði úr líkum á kynsjúkdómum og þungun – ef hann er notaður rétt. Það er mikilvægt að setja hann á strax í upphafi kynlífs, áður en snerting verður á milli slímhúða. Það getur verið gott að handleika smokk áður en hann er notaður, skoða hann vel og æfa sig. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga: LIND „Mér fannst það eiginlega ekkert vandræðalegt. Tilhugsunin var eiginlega meira stressandi en þegar ég lét loks verða af því. Ég labbaði bara inn í apótekið og sagði við sjálft mig að þetta væri eðlilegasti hlutur í heimi, tók smokkana úr hillunni og fór að kassanum. Mér fannst reyndar konan horfa svolítið á mig en ég hugsaði hvað með það. Ég borgaði og gekk út og var bara fjandi ánægt með mig.“ „Við bara gengum inn og skoðuðum smokkahilluna. Við völdum þessa í bláu SNÆI OG VIGGÓ SMOKKURINN ER Æfingin skapar smokkameistarann. 1. Athugaðu umbúðirnar Ef umbúðirnar eru skemmdar eða rifnar er smokkurinn ekki öruggur. 2. Kannaðu dagsetningu Útrunninn smokkur veitir litla vörn. 3. Opnaðu umbúðir varlega Ýttu smokknum til hliðar og rífðu umbúðirnar í horninu. Ekki nota tennur eða neglur. 4. Passaðu hvernig hann snýr Smokkurinn er upprúllaður. Ef hann lítur út eins og lítill hattur snýr hann rétt. 5. Settu smokkinn á áður en kynfæri snertast Rúllaðu honum upp á stinnt typpi áður en kynmök hefjast. 6. Haltu um totuna fremst Totan fremst á smokknum tekur við sæði. Taktu létt um hana með vísfingri og þumli og fingrunum haldið þar á meðan smokknum er rúllað upp á typpið. 7. Losaðu loftið Strjúktu varlega upp eftir smokknum til að losa loft. 8. Eftir kynmök Draga þarf typpið út áður en það mýkist, annars getur smokkurinn runnið af. 9. Haltu við smokkinn Best er að halda við neðri hlutann þegar typpið er dregið út. 10. Fargaðu rétt Taktu smokkinn af, bittu hnút á hann og settu í ruslið. MÁLID Í APÓTEKINU „Ég gekk nokkrum sinnum fram hjá hillunni í búðinni með smokkunum áður en ég þorði að kaupa mér pakka. Ég var alltaf að líta um öxl til að gá hvort einhver væri að koma. Þegar ég þorði loksins að kaupa smokka var ég smá stund að borga. Þegar ég sneri mér við með smokkana í höndunum stóð stelpa fyrir aftan mig. Ég eldroðnaði, en hún brosti bara. BRYNJA Það eru margar leiðir til að nálgast smokka. Reynsla fólks er mismunandi – sumum finnst auðvelt að fara að kaupa þá á meðan öðrum óþægilegt, sérstaklega í fyrstu. Á NETINU? Í BÚDINNI - Á BENSÍNSTÖDINNI - AD KAUPA - - Alltaf á að nota nýjan smokk við hver kynmök. pökkunum og borguðum á kassanum. Enginn kippti sér upp við það.” SMOKKA EINN SMOKK, TAKK! HA? MARKÚS „Mér fannst þægilegt að panta smokka á netinu. Ég gat skoðað úrvalið í ró og næði og valið það sem mér fannst henta. Smokkarnir komu í ómerktu umslagi, svo þetta var ekkert mál en ég verð að viðurkenna að ég var smá stressaður.“ VAR PETTA VANDRÆDALEGT? - -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=