Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

74 HVERNIG SMURDIR EDA ÓSMURDIR? Sumir smokkar eru með sleipiefnum. Það er misjafnt hvort fólki finnst það þurfa á þeim að halda. Við endaþarmsmök er mikilvægt að nota sleipiefni til að draga úr líkum á sársauka og rifum. KÍTLUSMOKKAR? Til eru smokkar með riflum eða totum sem eiga að auka örvun en upplifun af þeim er mismunandi eins og svo mörgu öðru. MED BRAGDI? Það er hægt að fá smokka með bragði, en þeir eru sérstaklega ætlaðir í munnmök. Svo er bara spurning hvaða bragð þykir best. SMOKK Það er til gríðarlegt úrval af smokkum og gott að prófa mismunandi gerðir. Í þessu eins og öðru er ekki víst að öllum henti það sama. ANNAD SEM KEMUR TIL ÁLITA VID VAL Á SMOKKUM ofnæmi fyrir því. Það fólk ætti að nota smokka úr plastefninu pólíúreþan. Þessir plastsmokkar eru einnig sagðir sterkari en latexsmokkarnir og því er full ástæða til að prófa þá líka. LITADIR EDA ÓLITADIR? Smokkar fást ekki bara í ýmsum gerðum heldur litum líka. Valið snýst aðallega um smekk og hvað fólki finnst þægilegt og skemmtilegt. STÆRD? Smokkar eru til í mismunandi stærðum, en það er ekki vegna þess að sumir séu með svo stór typpi að þau komist ekki fyrir í venjulegum smokk. Ef þú setur smokk yfir hnefann á þér getur þú teygt hann upp að olnboga. Ef þú blæst hann upp getur hann orðið einn og hálfur metri á lengd. Ekki þarf að hafa áhyggjur af stærðinni, öll typpi geta notað sömu stærð. Smokkur á að sitja vel, ekki vera of þröngur og ekki of laus. Það er því í lagi að prófa mismunandi tegundir og finna það sem hentar best. - LATEX EDA PLAST? Latex hefur verið notað í smokka í áratugi en því fylgir sá galli að sum hafa - - - - - - - - - - - MED EDA ÁN SÆDISBANA? Sumir smokkar innihalda sæðisdrepandi efni. Það getur haft áhrif á sæðisfrumur, en veitir ekki aukna vörn gegn kynsjúkdómum og hentar ekki öllum, þar sem það getur valdið ertingu. - - - MÁ BJÓDA PÉR? -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=