Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

71 Frekari upplýsingar um getnaðarvarnir má sjá á Heilsuvera.is TÖFRATEPPI NEYDAR- GETNADARVÖRN Algengar getnaðarvarnir: Hvað er það? Góð vernd gegn þungun? Góð vernd gegn kynsjúkdómum? Hvernig virkar þetta? Helstu kostir Helstu ókostir Hvar fæst þetta? Mjög góð. Ver gegn kynsjúkdómum. Auðvelt að nálgast. Þarf að vera við höndina og nota í hvert skipti. Fæst í matvöruverslunum, bensínstöðvum og apótekum. Þunnur gúmmí- eða latexdúkur (munnhlíf) sem lagður er yfir píku eða endaþarmsop við munnmök. Ver ekki gegn þungun. Minnkar líkur á kynsjúkdómasmiti við munnmök. Hormónatafla sem tekin er eftir kynlíf til að koma í veg fyrir þungun. Góð. Verndar ekki gegn kynsjúkdómum. Hefur áhrif á hormónastarfsemi og dregur úr líkum á þungun. Góð neyðarlausn ef hætta er á óæskilegri þungun. Verður að taka innan þriggja sólarhringa frá samförum. Fæst í apótekum án lyfseðils. Þunnur gúmmí- eða latexpoki sem rúllað er á stinnt typpi fyrir samfarir. Mjög góð ef hann er rétt notaður. Mjög góð. Kemur í veg fyrir að sæði berist inn í leggöngin eða endaþarm. Ver bæði gegn þungun og kynsjúkdómum. Auðvelt að nálgast. Þarf að vera við höndina og nota í hvert skipti. Getur rifnað eða runnið af ef hann er ekki notaður rétt. Fæst í matvöruverslunum, bensínstöðvum og apótekum. SMOKKURINN PILLAN Mjög góð. Verndar ekki gegn kynsjúkdómum. Hormónatöflur sem teknar eru daglega. Hún kemur í veg fyrir egglos og gerir slím í leghálsi þykkara svo sæði komist síður í gegn. Örugg getnaðarvörn ef hún er notuð rétt. Virkar ekki ef gleymist að taka hana. Getur valdið vanlíðan, ógleði, eymslum í brjóstum o.fl. Fæst í apótekum með lyfseðli frá lækni. Þetta fólk segir kannski eitthvað svona: Smokkurinn eyðileggur rómantíkina í kynlífinu. Smokkurinn dregur úr nautninni, og þú finnur ekki næga tilfinningu í gegnum hann. Smokkurinn er eitthvað ónáttúrulegur. Ef þú notar smokk ertu að gefa í skyn að þú treystir ekki þeim sem þú ert með. Smokkurinn er allt of dýr. Svo eru eflaust til fleiri afsakanir. En eru þetta gildar ástæður fyrir að hætta bæði lífi sínu, heilsu og framtíð? Eða getur verið að þetta sé bara fyrirsláttur? Kannski eru allt aðrar ástæður fyrir þessu, eins og til dæmis þessar: Mér er alveg sama um áhættuna sem verjulausar samfarir hafa í för með sér. Ég kann ekki að nota smokk og óttast að gera mig að fífli. SUM VILJA EKKI NOTA SMOKKA - - Ótímabær þungun og kynsjúkdómar er eitthvað sem kemur bara fyrir aðra.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=