Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

72 ER ÉG DÆMISAGA Sigurjón sat álútur í rúminu og dró af sér smokkinn í rólegheitum. En hvað var þetta … smokkurinn var rifinn. Það lak úr honum. Sigurjón horfði agndofa á rifinn smokkinn. Andrea lá hin rólegasta við hliðina á honum. Hvað átti hann að gera? Hann vissi ekki hvort smokkurinn hafði verið rifinn allan tímann, hvort sæðið hefði sloppið í gegnum rifuna? Jú, auðvitað hafði það gert það en það var samt ekkert víst að það gerði neitt til. Eða hvað? Átti hann að þegja og taka sjénsinn á að allt væri í lagi? Hvað ef Andrea kæmi til hans alveg brjáluð eftir mánuð og segðist vera ólétt? DÆMISAGA Það var laugardagsmorgunn. Eir lá í rúminu sínu með hjartslátt og spennu í maganum. Ilmur af ristuðu brauði barst inn í herbergið. Eir velti sér á grúfu og kreisti aftur augun. Hán hafði sama og ekkert sofið heldur velt sér í rúminu og reynt að forðast óttann sem læddist inn í hugann. Hán hafði ekki komið seint heim því hán var í uppnámi. Partíið hjá Önnu Láru hafði verið fínt. Þau Elís mættu saman. Þau voru búin að vera að deita í nokkrar vikur og það var gaman að vera „par“. Þau keluðu svolítið og dönsuðu þegar leið á kvöldið og allt í einu voru þau komin inn á klósett. Það var ótrúlega spennandi og þau kysstust og snertust innilega og Elís var með hann grjótharðann. Eir langaði að prófa að fá typpið inn í sig … bara aðeins. Elís fór varlega og … en svo var Elís of seinn og náði ekki að kippa honum út og allt gumsið sprautaðist inn. Eir trylltist! Þegar hán kom heim fór hán í sturtu og reyndi að skola leggöngin. Hán hágrét og var ógeðslega reitt út í Elís! Hvað gæti Eir gert strax eftir þetta? Hvaða úrræði eru í boði? Hvað hefði getað farið öðruvísi? Hvað ætti Sigurjón að gera núna? Hvernig getur hann sýnt ábyrgð í stöðunni? Hvað hefði verið hægt að gera öðruvísi? BARNSHAFANDI? Ímyndaðu þér að þessar aðstæður kæmu upp. Hvernig væri hægt að bregðast við? Hvaða valkostir eru í boði? Það er oft ekki bara ein rétt lausn – mikilvægt er að skoða möguleika og afleiðingar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=